08september

Nýtt upphaf á ţessari blessuđu síđu minni!

Ég hef ákveðið það að byrja aftur að blogga þar sem ég er ekki aleg að gera góða hluti þessum nýþróuðu heimum eins og myspace og facebook ! Hlæjandi

En ég ætla mér nú samt enga stóra hluti í bloggheiminum bara svona rétt að tjá mig um lífið og tilveruna Ullandi og ég hef líka svo agalega lítið að gera þessa dagana að ég hef ekkert betra að gera :) hehe "einmitt" 
En við litla fjölskuldan erum flutt inn í nýja húsið okkar sem er æðislegt!! risa stór og nóg af plássi fyrir ruslÓákveðinn En annars erum við bara rosalega ánægð og plummu okkur vel hérna í SOKKATÚNI 7!

En ég ætla nú að segja ykkur frá einu atviki sem ég lenti í núna fyrr i sumar... það var þannig að ég, Anna,Gylfi og Einar Logi vorum að fá okkur að borða á stað hér í bæ, og þegar ég er rétt byrjuð að borða af matnum mínum finn ég hár í honum... OKEY ég var svo geggjað svöng að ég lét bara hafa það og borðaði bara matin minn en sagði stelpunni sem var að afgreiða okkur frá þessu og að sjálfsögðu bauð hún mér nýja mat og allt þetta.. En svo þegar kom að því að borga ætlaði ég nú að reyna sníkja smá afslátt útaf þessu atviki afþví ég fékk nú ekki nýjan mat... ég segji stelpuni sem við erum að borga hjá frá þessu og viti menn stelpa segir! JÁ ÞETTA KEMUR FYRIR!!  ég var svo orðlaus að ég gat ekki sagt eitt orð! þannig að ég labbaði út með hökuna í gólfinu! svo þegar út var komið segji ég við Gylfa sagði stelpan þetta virkilega og hann bara hvað meinaru? ég bara sagði hún að þetta kæmi bara fyrir og gaf okkur engan afslátt? hann bara NEI Kata hún sagði MÉR ÞYKIR FYRIR ÞVÍ!  hehe sem ég að sjálfsögu kunni betur við en ég heyrði þá bara svona agalega vitlaust í greygið stelpuni og þakkaði ekki einu sinni fyrir migÞögull sem gröfin en þetta er einmitt eitt dæmi um hvað sögurnar eru nú fljótar að breytast!

E ég ætla að segja þetta gott af mínu fyrsta bloggi í langan tímaHlæjandi

kv. KATA V
08. september 2008 klukkan 17:18
Katrín Vilhjálmsdóttir
3 athugasemdir
25janúar

NEglur !!

Halló Halló ég er að hugsa um að misnota þetta blogg mitt því það er nú eiginlega alveg orðið dautt og auglýsa neglurnar sem ég er að gera! Hlæjandi

Allavega ef einhverjum langar í neglur sem er ekki með neglur og hefur áhuga á að fá sér neglur... heheh  þá endilega hafiði samband við mig í síma 6912910 Ullandi ! !

kv. Kata V
25. janúar 2008 klukkan 13:43
Katrín Vilhjálmsdóttir
Engin athugasemd
09október

Endalausir draumar ! !

 Góðan dag allir saman Hlæjandi
Langaði bara að henda inn smá fréttum af mér eða okkur frekar Koss Við erum ný komin frá Riga sem var bara ótrulega skemmtileg ferð nema ég varð fyrir pínu vonbrigðum, hvað varðar búðirnar þarna eða ég gat allavega voða lítið keypt annað en barnaföt, sem var svo sem allt í lagiGlottandi Annars er voðalega lítið að gerast þessa dagana en samt  alltaf nóg að geraUllandi hehe Vinna í bankanum og greifos svo er maður að reyna að sinna skólanum líkaHlæjandi þannig að það er í nógu að snúastUllandi  svo er ég ekki frá því að ég sé komin í smá jólaskap... allavega væri ég ekkert á móti því að fá smá snjó Brosandi

DRUMAR... ég er eiginlega farin að hræðast þá núna !
Mig er alltaf að tví dreyma einhverja drauma Fýldur T.d einn draumur sem mér finnst eiginlega pínu óhugnalegur... það er þannig að mig dreymir fullann hóp af lömbum og það er alltaf eitt lamb í hópnum alveg að deyja Þögull sem gröfin og er allann draum mjög veikt... en það hefur samt aldrei dáið...  getur einhver góð drauma ráðninga manneskja sagt mér hvað þetta táknar?  ? Tala af sér 

Annars er þetta komið gott í bili hjá Kötu og litla dýrinu Hlæjandi


09. október 2007 klukkan 10:52
Katrín Vilhjálmsdóttir
7 athugasemdir
20september

Allt ađ gerast :)

Ullandihæhæ allir saman :)

Ákvað að kasta inn smá fréttum af mér Hlæjandi eða ég ætti kannski að segja okkur... heh það er alveg hellginur að gerast hjá mér þessa daganaBrosandi ef við byrjum átoppnum þá erum ég og Gylfi búin að selja litlu krúttí íbúðina okkar í Skútagilinu og meira að segja flutt út úr henniÓákveðinn Já ég er flutt heim til mömmu og pabba sem er reyndar ekkert svo slæmt Koss það er alltaf lúxus líf að vera á hótel mömmuGlottandi En við ætlum ekki að búa þar það sem eftir er, heldur erum við búin að fjárfesta í nýrri eign:) Það hús stendur í götu sem hefur það yndislega nafn Sokkatún 7 Ullandi heheh  En við erum að kaupa það alveg án allra veggja og alles þannig að maður þarf að fara drífa sig smíðagallann og þurka rikið af hamrinum og hinu smíðadótinuBrosandi en þetta verður voða gaman að gera húsið sitt bara alveg eins og maður vill hafa þaðHlæjandi

En af okkur bumbukrílinu er allt gott að fréttaHlæjandi erum byrjuð í meðgöngujóga sem er alveg ótrulega gamanHlæjandi Annars stækkar krílið e-h frekar hægt að felur sig bara einhverstðar þarna inní... hehe en ég verð nú að segja að það er komin svoltið mikill speningur í mann... enda styttis ótrulega í þetta Glottandi það eru ca. 11vikur í litla engilinn okkar:) þeir sem vilja fylgjast nánar með geta farið inná  síðuna hjá unganum sem er
http://barnaland.is/barn/63808 Koss

Annars vil ég líka minna þær á sem vilja óðar fá sér neglur fyrir veturinn er ég alveg fær til þess að redda því :) þið hafið bara samband við mig ég er alltaf með heitt á könnuniGlottandi

En þá er þetta komið nóg í bili af Kötuni en þið meigið endilega taka ykkur til og kvitta Ullandi

20. september 2007 klukkan 15:26
Katrín Vilhjálmsdóttir
13 athugasemdir
22ágúst

Slysin gera sko ekki bođ á undan sér :(

jæja síðasta vika er búin að vera mjög sorgmædd en þrátt fyrir það var mjög ljúft að komast aðeins burt frá Íslandinu góða...
Ferðalagið hjá okkur Gylfa byrjaði ekki mjög vel eiginlega sem martröðGráta Við lögðum snemma af stað suður laugardagsmorguninn  11. ágúst þar sem ég átti pantaðan tíma í nudd í baðhúsinu sem fær mjög láa einkunn hjá mér...Fýldur einhvernveginn náði ég ekki að slaka á allann tímann, en ætla það hafi ekki bara verið ástæða fyrir því að ég var óróleg allann tímannTala af sér loksins þegar karlmaðurinn hætti að hjakkast á mér fór ég útí bíl þar sem Gylfi beið eftir mér og ég sá það strax að það var mjög skrítinn svipur á honumÞögull sem gröfin Þegar ég settist inní bílinn tilkynnti Gylfi mér það að mamma hefði hringt til að láta okkur vita að það hefði verið keyrt á hugoGrátaGráta Í fyrstu brást ég þannig við að ég hélt að Gylfi væri bara að stríða mér en auðvitað er þetta ekkert mál sem á að gantast e-h með !! svo þegar ég áttaði mig á því hvað hafði gerst leið mér hryllilega ! og líður eiginlega þannig enn ! Gráta Allavega var restin af þessum degi þannig að maður var bara stjarfur og það mátti varla fara yfir hraðahindrun þá byrjuðu tárin að falla og ég réð ekkert við migSkömmustulegur En mamma kom þessari elsku vel fyrir í garðinum í Mýrartúni þar sem hann hvílir sig þar og fylgist bara með okkur frá öðru sjónarhorniBrosandi En það er alveg hægt að segja það, að þetta er það erfiðasta sem hefur komið fyrir mig lengi og ég gat aldrei ímyndað mér hvað maður gat elskað hund jafn mikið og ég og Gylfi elskuðum hugo okkarSkömmustulegur En þá erum við aftur orðin bara tvo í koti en þá bíður maður bara spenntur eftir því að við að við verðum þrjú aftur og maður biður bara til gvuðs að eftir að það kríli komi í heiminn, verðum við vonandi aldrei aftur tvo í koti!!!



Sæta músin að skoða hvað sé að gerast úti !



Best að vera í mömmu holu og kúra !


Jólastrákurinn að passa pakkana :)



Pabbi og Hugo og kvíli sig eftir að hafa verið að jólaskreyta :)


Amma mín er best... að fylgjast með flugeldunum!

En ferðin til Lanzarote var bara mjög fín hótelið var algjör snilld og maður var bara heppin að það hafi engin komið inn í herbergi til manns og kvöldin og svæft mann það var svo stjanað í kringum okkurHlæjandi en við gerðum voðalega lítið annað en að liggja í sólbaði og slaka á... sem var alveg ótrulega gott ! núna er maður bara komin heim og þá tekur bara þetta venjulega líf aftur við sem er reyndar ekkert svo slæmt :) en ég er einhvernveginn ekki í stuð til að segja lengri ferðasögu frá ferðinni þannig að ég ætla að bíða með það þanngað til næst Glottandi

Hafi þið það gott og verið góð hvert við annað... þið vitið ekki hvernig morgundagurinn verður
kv. Kata V
22. ágúst 2007 klukkan 15:08
Katrín Vilhjálmsdóttir
19 athugasemdir
31júlí

Ţađ komu tár yfir glćstum!!! :)

Sælt veri þið fólkiðHlæjandi 
Ég er nátturlega alltaf jafn hrikalega dugleg í því að blogga og þá sérstaklega á sumrinUllandi Annars hefur nú mikið vatn runnið til sjávar síðan ég punktaði e-h niður hérna síðastÓákveðinn


 

Hérna er uppáhaldið mitt þessa dagana og ég að knúsastHlæjandi ég og Óskar Arnór Sæta Gull!!



  • Hélt gríðarlegt kökuboð á afmælisdaginn minn.... Takk kærlega fyrir mig allir sem komuHlæjandi
  • Búin að vera vinna eins og brjálaðingur á Greibbanum í júlí!! gott þaðKoss
  • Allar framkvæmdirnar heima hjÁ mér alveg að verða klárar !
  • Hormónakerfið er allt í tómi rugliÞögull sem gröfin
  • ÞAð eru bara 12 dagar þanngað til ég fer að sleikja sólina útá LanzaroteSvalur
  • Versló um næstu helgi og ég er engan veginn að nenna að fá hana núna !
  • Ef einhverjum vantar gullfallegan yaris þá er ég með einn til sölu Óákveðinn
  • Freyja mín er komin aftur í vinnuna sem er alveg ótrulega gottHlæjandi Nema hún er einni hæð of langt í burtu frá mérFýldur
  • Frú Victoria beckham er gjörsamlega alveg að missa sig... Mér finnst hún orðin hallærisleg!
  • Mig langar svo agalega mikið í mac förðurnarskólan sem byrjar núna í sept að sjálfsögðu íborg óttansFýldur


 

Annars verð ég nú aðeins að skjóta því að... hversvegna fyrirsögnin er "það komu tár yfir glæstum " Hormonakerfið mitt er í tómu tjóni þessa dagana og ég er svo viðkvæm að ég er farin að grenja yfir glæstum vonum... Hvað finnst ykkur um það ?Gráta Ég hafði aldrei ímyndað mér að maður gæti orðið svona viðkvæmur eins og ég er þessa dagana!!

Annars er hér stór spurning til ykkar allra Hlæjandi
HVAÐ Á AÐ GERA UM VERSLÓ ?


 

Annars vildi ég leyfa ykkur að finna smá keim af því eins sem ég hugsa um þessa dagana Svalur
Mynd af hóteli


 

HíhíhíUllandi


Hafi þið það gott elskurnar mínar og muniði það að.... 

Engum degi er jafnmikið sóað og þeim þegar maður brosir ekki.

Bros er ljós í glugga sálarinnar,
sem sýnir að hjartað er heima.

KATA V





31. júlí 2007 klukkan 11:11
Katrín Vilhjálmsdóttir
12 athugasemdir
16júlí

Sumariđ er meira en hálfnađ :(

BrosandiKossÞað er þýðir nú samt ekkert að væla yfir því að sumar sé meira en hálfnað Óákveðinn þótt það sé mjög sorglegt að hugsa til þess... en tíminn líður bara svo hratt að maður verður orðin hund gamall á elló áður en maður veit afGlottandi

Helgin var ótrulega góð hjá mér ég fór á ættarmót á laugarbakka sem sló algjörlega í gegn eins og maður átti alveg von á Ullandi heimilið mitt er alveg að verða komið á réttan stað eftir breytingarnar þótt það eigi aðeins eftir að gera svona smáhluti Hlæjandi
Svo á maður afmæli eftir ca. viku og ég var að hugsa um að halda smá kökuboð á sunnudaginn hún elsku besta systir mín ætlar að vera svo góð og hjálpa mér að bakaKoss Annars er ég að hugsa um að fara í dag og kaupa mér nýja ofn þar sem ofnin okkar er alveg að gefa upp öndina hann bakar bara öðru meginn... svo maður þarf að standa vaktina og snúa alltaf voð því sem er í ofninum Glottandi 
Annars er voða lítið annað að frétta af kötuni nema ég bara vinn og vinn og vinn en það fer nú að styttast líka í sólarferðina sem á eftir að verða án ef yndisleg bara ég og Gylfi ein einhverstaðar útá ballarhafi Svalur 
En ég held að þetta sé bara komið gott í bili hjá mér í dag Brosandi Ég lofa að standa mig betur í blogginu á komandi vikum og mánuðumUllandi

Kvitt takk.. kv Kata V
16. júlí 2007 klukkan 10:42
Katrín Vilhjálmsdóttir
18 athugasemdir
13júní

Sumariđ er tíminn!!!

jæja litlu vitleysingar þið virðist enn koma hérna á síðuna og a.t.h hvort ég sé á lífi! Tala af sér Þið hafi greinilega ekkert breyst elskurnar Ullandi ! ! ! hahahaha ég er á lífi og lifi meira að segja bara ótrulega góðu og hamingjusömu lífi núna Hlæjandi Sumarið er komið og það eru ekki nema 3 dagar þanngað til ég fer í sumarfríSvalurSvalur gúllígú hvað það verður snilld að fara bara í sumarfrí ekki að vera vinna eins og þræll allt sumarið!


Það sem er að frétta af Kötuni er svo sem voðalega lítið... jú ég er búin að kaupa nýja kagga sem er alveg að gera góða hluti mjög gott eintak þar á ferð Hlæjandi Svo erum við að taka aðeins í gegn heim setja nýjar flísar, Veggfóðra og brasa ýmislegt sem á held ég eftir að verða mjög flott þegar því er lokið Glottandi þá bíð ég sko í þrusu teiti allavega bankagellunum mínum Ullandi ! Svo er ekkert svo langt þanngað til við förum út að sleikja sólina á Lanzarote og váá hvað ég ætla ekki að gera neitt nema að slappa af og njóta þess að vera til Koss 

Um Helgina er ég að fara í brúðkaup hjá  Diddí frænku minni og Begga sem mér hlakkar ekkert smá mikið tilBrosandi það er svo ótrulega gaman að fara í brúðkaup!


Freyja mín er að sauma handa mér ekkert smá flottann kjól sem verður mjög spennandi að sjá afþví ég held að hann verði sjúklega flottur! hún er nátturlega bara snillingur þessi elskaKoss



Hérna er einn snilldar ljósku brandari sem þið ættuð að gefa ykkur tíma í að lesa Hlæjandi

Þessar ljóskur ....

Brúnka, rauðka og ljóska vinna saman á skrifstofu.

Þær taka eftir því að á hverjum degi fer fröken Sigríður yfirmaður þeirra aðeins of snemma heim úr vinnunni.


Einn daginn spjalla þær saman og sjá sér leik á borði að stelast Næsta dag þegar yfirmaðurinn fer læðast þær út stuttu síðar.



Brúnkan fer heim til sín og beint í rúmið, ákveðin í því að vakna snemma næsta morgunn og nýta tímann vel.

Rauðkan notar aukatímann með því að fara á líkamsræktarstöð áður en hún fer út að borða með vini sínum.


Ljóskan fer heim, gengur inn í svefnherbergið og sér eiginmann sinn í rúminu með fröken Sigríði, yfirmanni sínum. Hún lokar hurðinni og fer út.


Næsta dag ræða brúnkan og rauðan um það að nota sömu aðferð og daginn áður. Þær spyrja ljóskuna hvort hana langi til að fara aftur snemma heim.


"Nei" segir ljóskan. "Það komst næstum því upp um mig í gær!"

Annars held ég að þetta sé bara komið gott í bili hjá mér! hafi þið það gott Brosandi

13. júní 2007 klukkan 10:40
Katrín Vilhjálmsdóttir
21 athugasemd
16maí

Klöppum fyrir stelpuni sem henti tómri beikon osta dollu !!!

Flestir hugsa ábyggilega núna eftir að hafa lesið fyrirsögnina hvaða rugl er
Kata að fara skrifa núna Þögull sem gröfin  Þannig er bara mál með vexti að ég er sko ekki að fara skrifa einhverjar óþarfa línur hérna núna Hlæjandi 


 

Ég vildi bara halda uppá þann heiður hjá mér að í gær henti ég TÓMRI dollu sem í hafði verið Beikon smurostur ! og ég held að það hafi aldrei gerst á mínu litla og fámena heimil að einhverju hafi verið hent afþví það var búið... það er þá allavega mjög sjaldan því það reynur alltaf allt út hjá mér allar mjólkurvörur allt brauðmeti, ávextir og grænmeti migla hjá mér það liggur við að hveitið sem ég á inní skáp fara að skilja sig ! heh Brosandi
Annars er voðalega alveg hreint sáralítið að frétta af mér nema vinnan á mig alla þessa dagana og maður bíður bara spenntur eftir því að komast í sumarfrí Ullandi sem verður alveg ótrulega ljúft og gott ! Glyfi minn er bara farin frá mér í um það bil 10 eða svo hann er að vinna með pólverjunum í álverinu á Reiðafirði! Gráta grát hvað er leiðinlegt að sofa einn ! en huga sér alveg um það ef hann er hjá mér að minna mig á það að ég sé ekki ein Koss 

én ég held að þetta sé alveg komið gott í bili Berglind mín nú hefur e-h að gera það sem eftir er af þessum vinnudegi Glottandi

Ásgeir í tölvulistanum kveður að sinni ! kvitt takk

16. maí 2007 klukkan 16:09
Katrín Vilhjálmsdóttir
9 athugasemdir
07maí

Ljótir Draumar !!

Góðan Dag fólkið mitt fagra Hlæjandi

Ég verð að viðurkenna það að ég verð alveg drullöt í þessu bloggi þegar er ekkert að ske hjá mér og þegar er líka svona geggjað gott veður útiSvalur ekki það að veðrið sé gott í dag en það er búið að vera þvílik bongó blíða hérna á eyrinni Ullandi Annars er ég búin að vera mjög slöpp seinustu daga líðan mín er ekki alveg nógu góð, svo fór ég í smá útileigu með mömmu, pabba, Ídu og Unu á laugardaginn og það var við frostmark úti þannig að það er ekki skrítið að maður sé drulluslappur í dagFýldur


Seinustu tvær nætur er mig búið að dreyma ógeðslegar martraðirFýldur ég er búin að vakna á morgnana bara með kökkinn í hálsinum Gráta 
Eina nóttina dreymdi mig að það væri einhver maður með mig í gíslingu og ég komst ekki neitt hann lét mig bara hanga inní einhverri kompu og ég gat ekkert gert Skömmustulegur hvað ætli fái mann til þess að dreyma svona hrylling!!! ? ? ?
Annars gerist ekkert hjá manni maður  hittir engan nema fólkið sem maður er að vinna með og svo mömmu,pabba og Gylfa svona annað slagiðGlottandi annars verð ég að fara koma mér í allar þær heimsóknir sem ég er búin að lofa mér í !

Annars er vinnudagurinn búin í dag svo við sjáumst !
07. maí 2007 klukkan 16:26
Katrín Vilhjálmsdóttir
11 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Atburđarteljari

Atburđarteljari

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...